Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvar á landinu býrđu?

Orđ Dagsins

Eldurinn svíđur ţegar trođiđ er á honum, hvort sem ţađ er gert viljandi eđa óviljandi!!!

Klukkan

Flutningur

28. september 2007 klukkan 13:48
ég er flutt en nýja heimilið mitt heitir

http://fiona.blog.is

Vírus, vinna og vetur

23. september 2007 klukkan 22:37
Já ég ætla bara ekki að trúa því hvað það er langt síðan ég droppaði inn færslu....ótrúlega langt síðan.  Samt ekkert svakalega mikið búið að gerast,  við fórum reyndar í heimsókn norður í land.  Þar hitti ég frænda minn sem býr í Noregi, hann átti afmæli og varð 50 ára gamall.  Afi gaf honum alveg rosalega gömul gleraugu sem voru í tísku held ég bara fyrir 50 árum síðan.  En kallinn var svo óheppin að þau brotnuðu óvart og afi gamli ekki sáttur.  En það er hægt að laga allt með súper glú.  Ég fór í hagkaup til að kaupa mér langerma, síðan og lokaðan bol....tók mig alveg klukkutíma að finna bolinn....en svo þegar ég dressaði mig upp fyrir Bjössa minn um kvöldið þá sagði hann ,,en ástin mín er þetta langerma síður lokaður bolur''?  Hmmm hann er sko stutterma við axlir og fleginn!!! Svona er maður skrýtinn.  En svo þegar halda átti austur á land þá þurftum við að snúa við á Mývatnsöræfum...sökum hálku, hvassviðris, krapa og snjó.  Vá hvað er að ske....það er ´nú bara september,  Oj hvað ég þoli ekki að pikka á svona lítið takkaborð...alltaf að gera villur.  En anyway við kíktum á Pabba og co.  Þau eiga svon líka þetta litlar sætar kanínur...algjörar dúllur en ég með mína loðdýrafóbíu fannst bara alveg nóg að horfa á dýrin...ekki alveg tilbúin að krnúsa þær.  En það kannski lagast seinna.  Já svo komumst við heim á þeim degi þegar við áttum að mæta á næturvakt...ég ætlaði nú að leggja mig en þá uppgötvuðum við það að okkur vantaði kaffi og framhald af ísfólkinu.  Við fengum allt nema ísfólkið.  OG þegar ég var búin að leggja í stæði og búin að loka og læsa bílnum þá fattaði ég eitt....ÉG LÆSTI HEVÍTIS LYKLANA INNI Í BILNUM...  Bjössi hringdi á lögguna og hún mætti á svæðið og það tók helv langan tíma að komast inn..o ég skammaðist mín svo...allir að horfa.  En ég get ekki lofað því að þetta komi fyrir aftur.  Svo fékk ég að spreyta mig í vinnunni ein...strákurinn sem er með mér á deiglustöðinni var að fara á námskeið.  Sko kvöldinu áður var ég að vírushreinsa tölvuna hjá mér og ég held að hann hafi farið í mig.....það BILAÐI allt sem ég kom nálægt....ALLT og það var svo mikið að gera að ég komst ekki einu sinni á klóið....fyrr en löngu seinna og þá þurftir ég að labba í hægasta gangi með samanklemmd læri...ekki spes,  En talandi um veður.....ég var að keyra svo heim og hvað gekk á þá....jú brjáluð rigning og rúðuþurrkan bilaði hjá mér.  foj....ég sá ekki á milli stika  á hádalnum fyrir snjóbyl og skaflar allt um kring og á veginum.....hvað er málið?  Ógeðslegt sumar og ógeðslegt haust og bara ógeðslegar árstíðir.  Frekar flott að vera bara á Spáni í öli og baði.  En hvað um það maður er fæddur á þessu skeri og verður bara að lifa við þetta.  Og ég vildi óska þess að ég gæti komist á Reyðarfjörð í húsnæði þar,  ef veturinn verður bögg og maður kannski veðurtepptur hérna þá er nú ekki gaman.  Og ég er farin að bulla svo mikið og röfla þannig að ég held að ég stoppi bara núna og skrifi frekar skemmtilegt næst.  Þetta veður hefur bara rosaleg áhrif á mann.  I am so sorry.  En við heyrumst bara síðar og myndin uppi er af sætasta hundi í heimi sem er held ég að fara að flytja á Reyðarfjörð?  Það kemur bara í ljós.  Farið vel með ykkur.  og bless í bili

Prófíll

  • Nafn: Snjólaug Erna Ţorvaldsdóttir
  • Stađur: Akureyri
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Starfsmađur Alcoa
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ
  • Um mig: Bý á Hérađi međ mínum yndislega manni og sćki vinnu á 101 Reyđarfjörđ.

Hitt og Ţetta

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Art made with rocks! Funny Images, A very straightforward bumper sticker Funny Images, Derp in a swing Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay.. Funny Images, Prince Kid

Innskráningar kubbur

Afţreying

Leikur dagsins