Þetta er nú meira helvítið sem maður lifir við!!!!
I'm alive :)
Ég er ekki að hafa tíma í þetta rugl!!!
Nú er ég alveg búin að sjá það að ég hef ekki tíma í svona bull á netinu. Ég er greinilega ekki tölvufíkill dauðans. Reyndar er fólk að segja mér það að ég þurfi að leita mér hjálpar...ekki vegna áfengis heldur vegna vinnu. Eins og núna í morgun þá byrjaði ég klukkan 6, æji bara vegna þess að ég vaknaði klukkan 5 og nennti ekki að fara að sofa aftur. Reyndar sofnaði ég á ungbarnatíma í gærkvöldi. Svona við segjum rétt upp úr 8 hmhmh. Er aldurinn farinn að segja strax til sín??? Snjósan verður 25 ára eftir 2 daga. já nákvæmlega 3. ágúst. Og ég er svo heppin að ég fer einmitt í frí þá. jibbæi. Ég verð með afmælispartí á laugardaginn. (um kvöldið) og þetta er sko barnfrítt partí. Ég veit ekki hvað það koma margir en mér finnst gaman að fá gesti. En hef ég talað um það hvað mér finnast Pólverjar skemmtilegir? Ekki það nei. OJOJOJOJ oj oj barasta. Ég er alveg komin með æluna upp í heila. Eins og núna til dæmis þá er Jói (verkstjórinn minn) í sumarfríi, Jónas, Hemmi og Gunni líka. Og já Jóhannes (yfirmaðurinn minn) er líka í fríi en það er allt í lagi. Það er enginn söknuður í því. Og svo fengum við afleysingakall frá Akureyri til okkar hann heitir Hjörtur. Hann kom á fimmtudaginn en hann var svo horfinn á föstudaginn og ég snérist svo marga hringi í kringum mig að leita að honum...hey ég frétti það eftir svimakastið að hann hafði ''skroppið'' til Egilsstaða...ég róaðist um 5 gíra við það. Svo alveg þegar kvöldið var að verða búið þá var mér sagt það að Egilsstaðir urðu að ''Akureyri'' og hann kæmi á mánudaginn. Shit hvað mér kveið fyrir laugardeginum...ég þurfti að sjá um pleisið. Það var pínu erfitt en hafðist. Hann kom svo aftur á mánudaginn. Sjúkkidí. En úthaldið er að klárast og ég er að fara heim. Hafa menn gert sér grein fyrir því að verslunarmannahelgin er að sigla í land. Hvað ætliði að gera? farið bara í guðanna bænum varlega.
Það er sko búið að spá sjúku veðri munið eftir sólarvörn og sumarfatnaði en pakkið regngallanum líka. Veðráttan hérna á klakanum gæti komist í heimsmetabókina fyrir geðvonsku. Snjósa kveður í bili takk og bless. er voðalega róuð núna 
Vá hvað það er langt síðan síðast!!!!
Ég var að koma úr fríi í dag lenti í sælunni á Reyðarfirði um hálf 6 í dag. Ég hefði komið miklu miklu fyrr en það varð slys í morgun um 8 leytið. Ég veit ekki hvað kom fyrir en það allavega valt bensínbíll og það fór allt út um allt hjá gæjanum......skyldi hann hafa sofnað?? who knows? En ég var alveg búin að keyra einhverja 50 km þegar ég keyrði fram á löggukonu sem stýrði mér til Grenivíkur...halló ég var að fara allt annað. Hér kemstu ekki austar en þetta sagði daman. Svo ég fór heim í geðvonskukast og hringdi í múttu til að drekka kaffi með og hvað vildi mútta???? getiði. Hjálp við blaðaút
burð...ég hélt hún vissi að ég þoli það ekki...en í góðmennsku minni tók ég mig til og rétti hjálparhönd við það. Vona að henni hafi líkað það, MAmma ég elska þig. Svo fórum við á bakaríið við brúna og ég splæsti í kaffi handa mér mömmu og ömmu bauð þeirri gömlu að koma með. Var ekki alveg nógu dugleg að hitta hana í fríinu. En já ég var svo spennt að koma aftur í vinnuna að ég brunaði bara beint þangað. Kom ekki einu sinni við í herberginu til að skipta um föt og ég kom heim klukkan 10 núna í kvöld. Ég var sko ekki sátt þegar ég kom í vinnuna. Ég meina komm on maður rétt bregður sér af bæ og það þarf allt að fara til fjandans á meðan. Ógeðslegu Pólverjar .......brrrrrrr kuldi til þeirra. Ég meika þá engan veginn. Samt er ég búin að reyna allt. Ég held ég verði að fara samt að leggjast á koddann minn er ennþá að drepast úr pirring. Takk og bless
Hvað er að gerast?
Jamm og jæja!!! 
Hún ég ætlaði ekki að vinna í dag. Sofnaði klukkan 5 í morgun út af verkjum!! Svo þegar ég vaknaði í dag um 12 leytið ákvað ég að rölta niður í vinnuna með tímablaðið mitt (Það eru svona sirka 800 metrar). Ég hitti þennan margumtalaða yfirmann minn Jóhannes :) jei eða þannig. Hann sagði mér að fara í gallann og fylgjast með nýju pólsku beibinu ,,en hlífðu þér''. Hún er í viðgerðunum með mér og heitir Asja. Hún eyðir meiri tíma yfir daginn að tala við alla pólsku strákana heldur en í vinnuna. En þegar ég er nálægt þá læt ég hana sko vinna hehehe gaman að hafa völdin
. Þannig að dagurinn í dag var ágætur. Hey já það er einn strákur að vinna þarna í einingunum með okkur hann heitir Bessi. Mjög öðruvísi strákur. Hann getur stundum gleymst sér alveg. Eins og um daginn þá var hann að smúla með svona háþrýstidælu..en allt í einu var hann farinn að úða upp í loft í svona sirka korter. Fyndinn gæji. :) Nú fer að styttast í helgarfrí hjá mér. Planið var að fara í útilegu með stelpunum...en ég veit ekki hvort ég geti farið. Þetta er svo langt í burtu frá Akureyri og mér hefði ekki veitt af hvíld. Ég fer til bæklunarlæknis á mánudaginn. Og að vera í Borgarnesi og ekki á mínum bíl það er ekki að funkera. En allavega læt þetta duga í dag. Takk og bless 
Hversu fatlað?ur er maður!!!!
En í dag ákvað ég að mæta í vinnuna með óvirka vinstri hendi og það er aðalbatteríið á líkama mínum...þetta var nú svolítið skrýtið og líka pínu fyndið að sjá mig vinna með hægra beibinu. EKKI sterkur leikur. En annars gerðist ekkert merkilegt í vinnunni. Jú auðvitað við fengum 3 nýja Pólverja til okkar!! jejejeiiii :( Núna eru 10 Pólverjar, 2 Færeyingar og 5 Íslendingar 6 með verkstjóranum. Fín stefna hjá fyrirtækinu. Við heyrumst
Takk og bless 
smá viðbót!!!!
vitiði bara hvað!! ég er að fara til læknis á eftir...ætli það þurfi ekki að saga hendina af....esen
ég er ekki kát yfir þessu takk og bless
já góðan daginn
já nú er ég komin með svona blogg....þarf að læra á þetta
snjósa kvittar takk og bless







