Jíha It's alive :)
VAKTAPLAN JÚLÍ 2007
Jæja halló kalló bimbó.....I'm alive. Alveg kominn tími til að gefa undan þrjóskunni og blogga eitthvað pínulítið fyrst að Anna er búin að kommenta. Ég hef nú reyndar ekkert að segja...þannig séð. Maður er bara kominn á fullt í álverinu. Mér finnst þetta bara mjög fín vinna, fyrir utan nokkra fótaverki...en það jafnar sig!!!!einhverntímann. Ja há ég er að vinna í steypuskálanum...það er svo margt sem við gerum þar að það er mjög erfitt að segja frá því í orðum. En svona í grófum orðum, þá er álinu keyrt í svona deiglum svokölluðum svolítið líkt 14 þúsunda tonna potti. Svo er álinu hellt í ker og við þurfum að klæða okkur í spes fatnað og hreinsa raflausn sem flýtur ofan á af. Svo storknar álið í kerjunum og þá er hægt að kalla þetta hleifa. Sem síðan eru merktir og gæðastimplaðir eftir því hversu mikið magn er af járni og sílikoni. Svo kemur eimskip og keyrir þetta inn í gám sem síðan er svo sent til útlanda í sölu. Þar er það brætt upp og notað í bíla, flugvélar og m.fl. En nú er ég komin svolítið út fyrir mitt svið. Já en núna er ég í þjálfun á deiglustöðinni. Sem þýðir að ég þarf að hreinsa lokin á deiglunum, rörin, deiglurnar og setja þær í hitun sem við notum gasbrennara í. Þetta er svona gróft verkplan. SUNNUDAGUR MÁNUDAGUR ÞRIÐJUDAGUR MIÐVIKUDAGUR FIMMTUDAGUR FÖSTUDAGUR LAUGARDAGUR 1 2
NÆTURVAKT 3
NÆTURVAKT 4 5 6 7
DAGVAKT 8
DAGVAKT 9
DAGVAKT 10 11
NÆTURVAKT 12
NÆTURVAKT 13 14 15 16 17
DAGVAKT 18
DAGVAKT 19 20
NÆTURVAKT 21
NÆTURVAKT 22
NÆTURVAKT 23 24 25 26
DAGVAKT 27
DAGVAKT 28 29 30
NÆTURVAKT 31
NÆTURVAKT
Ef ég á nú að halda svolítið fast í norðlenska blóðið sem rennur um æðar mér...þá ætla ég að hreykja mér af veðráttunni hérna á Austurlandinu. Það hefur verið svo rosaleg blíða hérna síðan ég flutti austur að það kemur ekki dropi úr lofti, alltaf heiðskýrt, logn og gígantískur hitapollur. Klárir menn ættu að geta lesið á milli línanna og ákveðið hvar sannleikskornið liggur. :)
Ég er svo ligeglad þessa dagana vegna þess að núna vinnur maður við ál, dreymir ál, hugsar ál og klæðist áli. það er álið 2007...ekki árið. Ég er nú samt sem áður svo klaufsk, ætlaði nefnilega að henda hérna inn myndum af diskógalla ársins...þetta er svona galli sem alla konur dreymir um...enda líka styrkt af Alcoa. Þið vitið svona álþema....kemur kannski seinna ef einhver kann að kenna mér. Svo ætla ég að binda endi á pistilinn í bili. Nenni ekki meiru. En hér fyrir neðan er vaktaplanið mitt. Þangað til næst dúllurnar mínar hafið það gott og virðið dýrmætustu gjöfina....lífið sjálft. Bless bless í bili.
lovjú gæs
Kveðja Anna Bryndís
og þetta er GEGGJAÐ flott mynd þarna uppi :)
Kveðja Anna Bryndís








Kveðja anna