Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvar á landinu býrðu?

Orð Dagsins

Eldurinn svíður þegar troðið er á honum, hvort sem það er gert viljandi eða óviljandi!!!

Klukkan

HVAÐ GET ÉG SAGT!!!

10. júní 2007 klukkan 15:24

Já það er kannski kominn tími til að blogga pínulítið..  Langt síðan síðast..en ég var nú bara að detta í samband við umheiminn.  Sem sagt í þessum skrifuðu orðum sit ég inn í ''eldhúsinu'' á Egilsstöðum.  Já við erum flutt til Egilsstaða..Fínasta íbúð í stærri kantinum svona miðað við hverju ég hef  vanist.  Mér finnst allavega mubblurnar verða að krækiberi í úthaga.  Er svona enn að venjast því að það er ekki hlaupið að því að ''skreppa'' í kaffi til mömmu og hitta Sóveigu og Ingu.  Sakna ykkar allra þarna norðan heiða.  Ég get ekki kvartað yfir útsýninu hérna..það er svo magnað.  Enda líka búum við á 6. hæð.  Við fengum alveg frábæra aðstoð við flutninginn...svona þegar fór að líða að kveldi.  En sko þrjóskan í mér að labba alltaf upp á 6. hæð með dót í fanginu var fáranleg..held ég hafi farið einar 8´ferðir upp með ''smádót'' og eftir 4 ferð sagðist ég ekki ætla fleiri ferðir en hélt samt áfram.  Lyftan var mjög upptekin og höfðum við ekki séns á því að komast að...allir líka að flytja inn þennan dag....enda bilaði hún líka Glottandi í eina 3 klukkutíma.  Svo kom að því að maður frá aðalflutningum kom og sagði að fótboltaliðið kæmi eftir æfingu og myndi hjálpa okkur. Þvílíkur munur.  Svo kom himnasending frá Akureyri.  Inga og Sólveig mættar á svæðið með sko orku á við heilt þorp og íbúðin skipulögð á engri stund.  Svo kom laumufarþegi með þeim,  Litla barnið okkar hann Bastían.  Það var æðislegt að fá hann aftur heim.  Nú á mándueginum 4. júní fórum við svo í skólann.  Álversskólann sko...mikið sem þarf að læra áður en maður fer í vinnuna.  Og ég get fullvissað ykkur um það að ég mun vinna í dýrasta fatnaði sem ég hef eignast...eitt sett kostar 130 . þúsund krónur. og það er fyrir utan skóna sko. Við fáum 3 sett.  En þetta er búið að vera þrælgaman og ég hef kynnst fullt af fólki og unnið hin og þessi verkefni í sambandi við hópvinnu.  Hlakka held ég bara til að byrja starfið.  Á föstudaginn 8 júní lét ég ætlleiða Bastían og er hann því fluttur að heiman.  Fluttur á Eskifjörð´og ég sakna hans alveg gríðarlega.  En þetta gekk ekki upp að hafa hann hérna í blokkinni. Hann er víst kominn á góðan stað núna og er í góðum höndum. Það góðum að honum hefur verið spillt.  fær að vera uppí rúmi og svona sem var bannað hér hjá okkur.  En fram að þessu höfum við bara verið heima að koma okkur alltaf betur og betur fyrir. Má nú ekki gleyma því að mamma birtist hérna 2. júní og færði okkur afmælis og innflutningsgjöf alveg líka þetta svaka flotta grill.  Það hefur verið mikið brúkað.  Og um kvöldið var kominn stór kassi umvafinn bleiku teppi og hvað var í kassanum....hvað haldiði?  jú jú eitt stykki ryksuga alveg splunkuný og ekki keypt af barnalandi.  Hún var frá Ingu og Sólveigu.  Takk allir saman fyrir allt saman.  En ég kveð í bili og kem með fleiri fréttir seinna... Bless bless og bestu kveðjur að austan.Hlæjandi

 
Díana Mjöll
grill & ryksuga? bastían farin? vinnuföt upp á 130.þúsun kr - skór?
okay..
fínt blogg;)
#1
10. júní 2007 klukkan 15:51
 
ings
spurning með að senda eyrnatappa ef ryksjúgarinn verður notað eitthvað að ráði hehe.
en við söknum ykkar MEIRA plebbinn þinn. fnuff og fniffs bara á ykkur flytjuóðu kvikindi :(
ennnn það styttist í útsofelsið jeiii
#2
11. júní 2007 klukkan 01:12
 
ings
verð bara að skrifa meira því það eru svo kúl staðfestingatölur... 911
#3
11. júní 2007 klukkan 01:13
 
Sólveig
ef að þið voruð ekki búin að frétta af því... SVIKARAR!!!!

Söknum ykkar líka, asnar.

Ég er ekkert bitur... já neinei...
#4
12. júní 2007 klukkan 16:47
 
snjósa
það eru nú líka til símar og svo myndir og myndarammar...það er ekki eins og við séum farin í eilífðina...Svo er nú ekki langt á milli staða...krúttið mitt.
#5
12. júní 2007 klukkan 19:32
 
Guðmunda
hæ hæ og velkomin austur
hvenar á svo að kíkja í kaffi
#6
15. júní 2007 klukkan 09:22
Hæ frænka! Til hamingju með nýja heimilið og starfið mamma þín situr hérna hjá mér og var að lóðsa mig á síðuna þína. Gangi þér allt sem best!!
Guðrún frænka í hHfnarfirðinum
#7
16. júní 2007 klukkan 22:57
 
Díana Mjöll
mér finnst að fyrst þú ert nú flutt austur þá ætti að koma fleiri bloggfærslur svo maður fái einhverjar fréttir :)
#8
17. júní 2007 klukkan 16:52
 
Snjólaug
Sko ég myndi segja frá einhverju ef það væri eitthvað að segja frá. Bíðið bara slök
þetta kemur allt með kalda vatninu
#9
17. júní 2007 klukkan 18:14
 
Snjólaug
En jú svo er ég nú að bíða eftir því að anna frænka komi með sitt komment á þetta allt saman...það var hún sem var með þrýsting
#10
17. júní 2007 klukkan 18:14
blogga meira kona....röfla bara um æðislega veðrið á elsku elsku austurlandi ef ekkert annað er hmmmmmmmmmm
#11
21. júní 2007 klukkan 15:53
 
Díana Mjöll
núna geturu sagt frá nýjuu vinnunni & góða veðrinu sem hefur verið á egs undanfarna daga !!
ha hvað um það?:D
#12
05. júlí 2007 klukkan 18:04
Oki ég er komin heim og er sko alveg til i að commenta hjá þer. Hvernig gastu látið Bastían saknarðu hans ekki geggt mikið?
Það er gott að þið eruð komin með íbúð en ég þarf að fara að koma austur í heimsókn og skoða nýju íbúðina ykkar. Mikið rosalega sakna ég þess að þú og Bjössi séuð hérna á akureyri. Ég kom kannski ekki oft í heimsókn en ég hitti ykkur oftar en ég hitti ykkur núna. Það er eins gott að maður fari að fara að hitta ykkur.
Tvær spurningar að lokum.
Ætlið þið ekki að koma á ættarmótið?
Eða þurfið þið að vinna?
Kveðja Anna besta frænka
#13
07. júlí 2007 klukkan 17:40

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Snjólaug Erna Þorvaldsdóttir
  • Staður: Akureyri
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Starfsmaður Alcoa
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð
  • Um mig: Bý á Héraði með mínum yndislega manni og sæki vinnu á 101 Reyðarfjörð.

Hitt og Þetta

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Art made with rocks! Funny Images, A very straightforward bumper sticker Funny Images, Derp in a swing Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay.. Funny Images, Prince Kid

Innskráningar kubbur

Afþreying

Leikur dagsins