Flutningur
http://fiona.blog.is
Vírus, vinna og vetur

Í dag var veðrið gott á Egilsstöðum....alveg vel þolanlegt á svölunum. Allavega hægt að fara út án allra yfirhafna og tilheyrandi lopafatnaðar. Ég er að fara á næturvakt og ætla að hafa með mér eitthvað hlýtt og gott til að klæðast...það er eitthvað sem segir mér að það verði mjög kalt í nótt. Og ef þetta er svona næturvakt eins og þær hafa verið mestmegnis þá er nú ekki svo mikið að gera. En ég get allavega sagt ykkur það að ég er komin með lyftarapróf og kranapróf. Eitthvað sem ég var búin að ákveða að ég gæti ekki. En svo fer að styttast í að ég taki dráttavélaprófið. Það fer alltaf um mig smá magakvíði þegar að kemur að stjórna nýjum og stórum tækjum...en svo lagast það. Já nú er Ormsteiti lokið og allur bærinn sem iðaði af mannlífi dregur sig hægt og rólega í takt við dagsins önn og allt bara svona liðast áfram og ferðamnennirnir streyma heim til sín. Enda líka stórhættulegt þetta hálendi. Já Guð blessi þessa Þjóðverja sem urðu ógn jöklanna að bráð. En farið vel með ykkur og knúsið alla sem ykkur þykir vænt um. Bið að heilsa í bili.
ÞAKKLÆTI

Ok hvað er málið með fólk í dag....kann það ekki að þakka fyrir sig??? Ég er svo stórkostlega hneyksluð að ég er bitur yfir því hvað ég er hvumsa yfir þessari uppgötvun.!!! Það kostar ekkert mikið að að segja takk fyrir mig..auk þess sem það hefur vellíðandi áhrif á sálartetrið í þér og svo einstaklingnum sem þú ert að ´þakka fyrir. Þið vitið ekki hvað það hefur neikvæð áhrif á mann sjálfan hvort að ákveðinn hlutur hafi skilað ´sér og þessar tilteknu manneskjur verið ánægðar...ég persónulega tek því þannig að úr því að ekkert heyrist frá þessum persónum ´þá séu þær mjög ósáttar, eða að þessi tiltekna setning finnist ekki í þessum sýkta heila sem er útbreiddur dónaskap og merkilegheitum. Ef þetta fer eitthvað illa í ykkur þarna úti þá bara sleppið því að eyða svo lítið sem skúndubroti af sóun á tíma og heilabrotum í þetta helv....

Sökum þess hve fáir einstaklingar hringja í mig þá ætla ég að varpa hérna á bloggið mitt vaktaplaninu fyrir ágúst mánuð. Mér finst þetta eiginlega hætt að verafyndið. Sko ég lenti í því núna í fyrradag að ég var heima og það heyrðist eitthvað skrítið hljóð....hmmm ég ákvað að ganga á hljóðið og gekk þá að einhverju apparati og tók það upp þá hætti hljóðið. SKrýtið vitiði hvað....það var rödd í apparatinu sem talaði og ég skal segja ykkur það að ég var bara steinhissa. Nei þetta var bara sölukona... :( Svo spurði ég hvað þetta héti.....sími var mér sagt.
En myndin hérna fyrir ofan fylgir bara með svona gamni. Ég var á ferðalagi um daginn og ákvað að smella á mynd.
| SUNNUDAGUR | MÁNUDAGUR | ÞRIÐJUDAGUR | MIÐVIKUDAGUR | FIMMTUDAGUR | FÖSTUDAGUR | LAUGARDAUGR |
| 1 | 2 | 3 ÉG 26 ÁRA | 4 DAGVAKT | |||
| 5 DAGVAKT | 6 DAGVAKT | 7 DAGVAKT | 8 | 9 NÆTURVAKT | 10 NÆTURVAKT | 11 |
| 12 INGA 26 ÁRA | 13 DÍANA 14 ÁRA | 14 DAGVAKT | 15 DAGVAKT | 16 TINNA BRÁ 18 ÁRA | 17 NÆTURVAKT | 18 NÆTURVAKT |
| 19 NÆTURVAKT | 20 | 21 | 22 | 23 DAGVAKT | 24 DAGVAKT | 25 |
26 | 27 DILJÁ SIF 10 ÁRA NÆTURVAKT | 28 NÆTURVAKT | 29 | 30 | 31 |
Jíha It's alive :)
VAKTAPLAN JÚLÍ 2007
Jæja halló kalló bimbó.....I'm alive. Alveg kominn tími til að gefa undan þrjóskunni og blogga eitthvað pínulítið fyrst að Anna er búin að kommenta. Ég hef nú reyndar ekkert að segja...þannig séð. Maður er bara kominn á fullt í álverinu. Mér finnst þetta bara mjög fín vinna, fyrir utan nokkra fótaverki...en það jafnar sig!!!!einhverntímann. Ja há ég er að vinna í steypuskálanum...það er svo margt sem við gerum þar að það er mjög erfitt að segja frá því í orðum. En svona í grófum orðum, þá er álinu keyrt í svona deiglum svokölluðum svolítið líkt 14 þúsunda tonna potti. Svo er álinu hellt í ker og við þurfum að klæða okkur í spes fatnað og hreinsa raflausn sem flýtur ofan á af. Svo storknar álið í kerjunum og þá er hægt að kalla þetta hleifa. Sem síðan eru merktir og gæðastimplaðir eftir því hversu mikið magn er af járni og sílikoni. Svo kemur eimskip og keyrir þetta inn í gám sem síðan er svo sent til útlanda í sölu. Þar er það brætt upp og notað í bíla, flugvélar og m.fl. En nú er ég komin svolítið út fyrir mitt svið. Já en núna er ég í þjálfun á deiglustöðinni. Sem þýðir að ég þarf að hreinsa lokin á deiglunum, rörin, deiglurnar og setja þær í hitun sem við notum gasbrennara í. Þetta er svona gróft verkplan. SUNNUDAGUR MÁNUDAGUR ÞRIÐJUDAGUR MIÐVIKUDAGUR FIMMTUDAGUR FÖSTUDAGUR LAUGARDAGUR 1 2
NÆTURVAKT 3
NÆTURVAKT 4 5 6 7
DAGVAKT 8
DAGVAKT 9
DAGVAKT 10 11
NÆTURVAKT 12
NÆTURVAKT 13 14 15 16 17
DAGVAKT 18
DAGVAKT 19 20
NÆTURVAKT 21
NÆTURVAKT 22
NÆTURVAKT 23 24 25 26
DAGVAKT 27
DAGVAKT 28 29 30
NÆTURVAKT 31
NÆTURVAKT
Ef ég á nú að halda svolítið fast í norðlenska blóðið sem rennur um æðar mér...þá ætla ég að hreykja mér af veðráttunni hérna á Austurlandinu. Það hefur verið svo rosaleg blíða hérna síðan ég flutti austur að það kemur ekki dropi úr lofti, alltaf heiðskýrt, logn og gígantískur hitapollur. Klárir menn ættu að geta lesið á milli línanna og ákveðið hvar sannleikskornið liggur. :)
Ég er svo ligeglad þessa dagana vegna þess að núna vinnur maður við ál, dreymir ál, hugsar ál og klæðist áli. það er álið 2007...ekki árið. Ég er nú samt sem áður svo klaufsk, ætlaði nefnilega að henda hérna inn myndum af diskógalla ársins...þetta er svona galli sem alla konur dreymir um...enda líka styrkt af Alcoa. Þið vitið svona álþema....kemur kannski seinna ef einhver kann að kenna mér. Svo ætla ég að binda endi á pistilinn í bili. Nenni ekki meiru. En hér fyrir neðan er vaktaplanið mitt. Þangað til næst dúllurnar mínar hafið það gott og virðið dýrmætustu gjöfina....lífið sjálft. Bless bless í bili.
HVAÐ GET ÉG SAGT!!!
Já það er kannski kominn tími til að blogga pínulítið.. Langt síðan síðast..en ég var nú bara að detta í samband við umheiminn. Sem sagt í þessum skrifuðu orðum sit ég inn í ''eldhúsinu'' á Egilsstöðum. Já við erum flutt til Egilsstaða..Fínasta íbúð í stærri kantinum svona miðað við hverju ég hef vanist. Mér finnst allavega mubblurnar verða að krækiberi í úthaga. Er svona enn að venjast því að það er ekki hlaupið að því að ''skreppa'' í kaffi til mömmu og hitta Sóveigu og Ingu. Sakna ykkar allra þarna norðan heiða. Ég get ekki kvartað yfir útsýninu hérna..það er svo magnað. Enda líka búum við á 6. hæð. Við fengum alveg frábæra aðstoð við flutninginn...svona þegar fór að líða að kveldi. En sko þrjóskan í mér að labba alltaf upp á 6. hæð með dót í fanginu var fáranleg..held ég hafi farið einar 8´ferðir upp með ''smádót'' og eftir 4 ferð sagðist ég ekki ætla fleiri ferðir en hélt samt áfram. Lyftan var mjög upptekin og höfðum við ekki séns á því að komast að...allir líka að flytja inn þennan dag....enda bilaði hún líka
í eina 3 klukkutíma. Svo kom að því að maður frá aðalflutningum kom og sagði að fótboltaliðið kæmi eftir æfingu og myndi hjálpa okkur. Þvílíkur munur. Svo kom himnasending frá Akureyri. Inga og Sólveig mættar á svæðið með sko orku á við heilt þorp og íbúðin skipulögð á engri stund. Svo kom laumufarþegi með þeim, Litla barnið okkar hann Bastían. Það var æðislegt að fá hann aftur heim. Nú á mándueginum 4. júní fórum við svo í skólann. Álversskólann sko...mikið sem þarf að læra áður en maður fer í vinnuna. Og ég get fullvissað ykkur um það að ég mun vinna í dýrasta fatnaði sem ég hef eignast...eitt sett kostar 130 . þúsund krónur. og það er fyrir utan skóna sko. Við fáum 3 sett. En þetta er búið að vera þrælgaman og ég hef kynnst fullt af fólki og unnið hin og þessi verkefni í sambandi við hópvinnu. Hlakka held ég bara til að byrja starfið. Á föstudaginn 8 júní lét ég ætlleiða Bastían og er hann því fluttur að heiman. Fluttur á Eskifjörð´og ég sakna hans alveg gríðarlega. En þetta gekk ekki upp að hafa hann hérna í blokkinni. Hann er víst kominn á góðan stað núna og er í góðum höndum. Það góðum að honum hefur verið spillt. fær að vera uppí rúmi og svona sem var bannað hér hjá okkur. En fram að þessu höfum við bara verið heima að koma okkur alltaf betur og betur fyrir. Má nú ekki gleyma því að mamma birtist hérna 2. júní og færði okkur afmælis og innflutningsgjöf alveg líka þetta svaka flotta grill. Það hefur verið mikið brúkað. Og um kvöldið var kominn stór kassi umvafinn bleiku teppi og hvað var í kassanum....hvað haldiði? jú jú eitt stykki ryksuga alveg splunkuný og ekki keypt af barnalandi. Hún var frá Ingu og Sólveigu. Takk allir saman fyrir allt saman. En ég kveð í bili og kem með fleiri fréttir seinna... Bless bless og bestu kveðjur að austan.![]()
ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ!
Já hann var að renna í hlað....gámurinn sem mun hýsa búslóðina til 1.júní
Ég er ekkert að róast!!!
Sorgleg staðreynd en sönn...það verður víst ekkert kveðjuteiti ![]()
En kannski verður svona innflutningspartý....nú hafið þið sko ástæðu til að fara eitthvað í sumarfríinu.![]()
Já aðsetrið verður á Egilsstöðum.....![]()
En ég hleð í ykkur fleiri upplýsingum síðar....bless þangað til![]()








